Nú vantar okkur gull til að smíða úr og við bjóðumst til að kaupa allar tegundir af gullskartgripum, hvort sem er gamla, nýlega eða ónýta.
Nú er gullverð afar hagstætt og því tilvalið að kíkja í skúffurnar og selja gamalt dót sem hætt er að nota eða ekki er áhugi fyrir að eiga.
Kæri viðskiptavinur
Við hjá Jóni og Óskari höfum keypt og selt gull í 40 ár og höfum því mikla reynslu á þessu sviði. Hjá okkur er fagmennskan í fyrirrúmi.
Þessi þjónusta er eingöngu í boði í verslun okkar á Laugavegi 61.
Við bjóðum sanngjarnt verð þar sem við smíðum sjálf úr öllu gulli sem við kaupum getum við boðið viskiptavinum okkar besta verð sem í boði er á markaðnum.
Við bjóðum þér að koma til okkar þar sem fagmenn meta skartgripina og við gerum tilboð þér að kostnaðarlausu.
Greiðslumáti:
Við staðgreiðum allt gull, með millifærslu á bankareikning viðkomandi.
Við áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.