0 vara

Hvar á ađ bera giftingarhringana?

Alveg frá því að það varð almenn venja að nota brúðkaupshringi, hefur verið rætt um, hvort hringurinn eigi að sitja á hægri eða vinstri baugfingri. 
Sumum finnst að bera skuli brúðkaupshringinn á vinstri hönd, hún liggur jú nær hjartanu.  En þar sem hringurinn er í raun tákn um trúlofun eru aðrir sem segja að hringurinn eigi að vera á hægri hendi á meðan hann sé tákn um trúlofun. 
Það eru því ekki alveg fastar reglur varðandi það hvort sé réttara að bera giftingarhringinn á vinstri eða hægri baugfingri.  Margir velja það hins vegar að nota vinstri baugfingur fyrir trúlofunarhring og síðan þann hægri fyrir giftingarhringinn.  Þegar sami hringur er notaður er hann færður frá vinstri hendi yfir á þá hægri.  Oft er þetta erfitt því ekki er alltaf sama stærð á fingrum vinstri og hægri handar.  
Við mælum með því að fólk ákveði þetta sjálft strax í upphafi trúlofunar og velji sjálft óháð öðrum hefðum.  Hvernig væri til dæmis fyrir rétthent fólk í grófri vinnu að hafa hringinn á vinstri hendi.  Þá mæðir minna á hringnum og hann endist lengur.