Góð ráð

Ýmislegt um hringana okkar

Á Íslandi eru trúlofunarhringar einnig notaðir sem giftingarhringar og er því ætlast til að þeir endist ævilangt.  Því er nauðsynlegt að vanda vel valið.  Trúlofunarhringar eru af ýmsum gerðum, breiðir, mjóir, þykkir, þunnir og oftast úr gulli, 8kt, 9kt, 14kt og 18kt. Það nýjasta eru hringar úr stáli, títan og platínum. 

Hér á Íslandi er algengast að nota 14kt gull í hringa, 585 hluta gull af 1000.  Sú blanda hentar vel því hitaveitu-vatnið okkar nær yfirleitt ekki að oxitera 14kt gull (oxitering gerir gull dökkt). Verð hringana fer því yfirleitt eftir breidd og þyngd. 

Hefðbundna slétta hringa eigum við ávallt til og getum því afgreitt þá samdægurs.  Munstraða hringa eigum við einnig til á lager, en ekki í öllum breiddum og stærðum, og þarf því að sérpanta þá og er afgreiðslufresturinn 7 - 15 dagar. 

Hringarnir okkar eru hágæðavara og gullið ávallt 14 karöt. 

Við getum sent til ykkar hringamál til að mæla fingurstærð.  Vinsamlegast hringið eða sendið okkur tölvupóst. 

Við þjónustum viðskiptavini okkar á ýmsan hátt, t.d. minnkum, stækkum, pússum, hreinsum og pólerum eldri hringa hvnenær sem er. 

Við bjóðum hringa í öllu verðflokkum. 

Við getum sent ykkur hringana í ábyrgðarpósti eða í póstkröfu, ef þess er óskað. Einnig bjóðum við Visa og Euro greiðslur, léttgreiðslur og raðgreiðslur. 

Við bjóðum ykkur velkomin í verslun okkar og bendum á að við tökum einnig við pöntunum og fyrirspurnum í gegnum síma. Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst. Ef um séróskir er að ræða reynum við eftir fremsta megni að koma til móts við ykkur. 

Vinsamlegast athugið að áletrun innan í hringana bjóðum við viðskiptavinum að kostnaðarlausu.